Ashoooolemioooo!!!!!
02.08.2008 08:47:57 / zepplinn

Skal fra Pollandi!

Komid thid blessud og sael. Hef ekki nennd ad sitja fyrir framan tolvuna og blogga. Madur er buinn ad vera uti ad ferdast um. Fyrsta vikan var flakk og gekk madur i 4 tima a dag. Hafdi hvort sem er ekki adgang ad tolvu i Krakow. nu er eg kominn til Tzcew og hefur verid 30 stiga hiti nema nuna er adeins minni hiti og ringdi thegar eg vaknadi i morgun. Madur er kominn med sma lit a kroppinn. Segjum tvofalda barbrunku. Er ad na mer nidur eftir Auschwitch ferdina sem var mognud. Tok held eg um 300 myndir i budunum. Er ekki buinn ad versla mikid en keypti ny gleraugu a nefid a mer, buxur og peysu. Thessi stadur er ekki med thessar tiskuverslanir en nog ad afengisverslunum og kominn med MacDonalds stad. Madur verdur i godum malum med Polskan bjor i annarri og Macca i hinni.

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 22:09:52 / zepplinn

Þreyta

Síðasti dagur fyrir frí er framundun. Ísleifur var svo vænn um að taka mig af næturvakt, til að vera vaktstjóri á daginn. Búin að vera fín vika, nema að eyrað er ekki gott. Er ekki ennþá kominn með sigg á það eins og vaktstjórarnir eru með.  Maður sér fríið í hillingu. Veðurspáin í Póllandi er ekki góð. Því að það er spáð Íslensku sumri fyrstu 4 daganna. Maður er öllu vanur hér á klakanum. Reyni ná að skrifa eiithvað í fríinu. Verð duglegur að taka myndir.

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.06.2008 16:02:41 / zepplinn

Úff!!!!!

Veit ekki hvort ég á að hlægja eða.... Síðasti dagurinn var horbjóður, 67km keyrðir og 5 útköll. Lá eins og skata í sófanum. Ætlaði með liðinu á 2 vaktinni í körfubolta. Ekki séns að kallinn hafi náð að halda sér vakandi, þegar heima var komið. Annars er rólegt að gera hjá kallinum. Ætla að fara að þrífa gamla bílinn og reyna að selja hann. Hef ekkert að gera við 2 bíla. Miðað við bensínverðið, ætti maður að vera hjólandi. Á einhver Harley á 80 þús?;) Ætla að slappa af í dag. Hugsa um að skreppa út með myndavélina í kvöld og taka myndir. Hugsa að ég á ekki eftir að geta sofnað á skikkalegum tíma í kvöld. Síðasta næturvakt fyrir sumarfrí var í gær og taka við 2 vinnuvikur á dagvakt eftir það. Get vart beðið eftir að hvíla mig frá vinnunni og hlaða batterýin yfir íssköldum pólskum bjór á ströndinni í 30 stiga hita.
    


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 09:45:19 / zepplinn

Síðan

Er kominn í frí og fer að vinna í síðunni í dag. Upp hafa komið vandamál með að komast inn á síðuna. Eru það sveitafólkið fyrir austan:) Kannski er búið að setja síu á ykkur? Ekkert klám og ofbelti, Sindri minn.:lol:Það er hægt að komast inn á bæði http://www.zepplinn.com og http://www.freewebs.com/zepplinn/. Ef það virkar ekki látið mig vita. Enn af mér er lítið að frétta. Kláraði vetrafrí í vikunni og vann bara 4 síðustu dagana. Kominn nú í fríviku og ætla að notta daginn í að þrífa íbúðina og versla. Bæta efni á síðuna tekur lungann úr deginum líka. Enn það er ágætis veður og kannski maður fari á röltið í kvöld og anda að sér ferskum útblæstri, til að hressa sig við. Líður senn að júróvisjón og ég verð í fríi sem betur fer. verð líklega í Þorlákshöfn í grilli og víni. Fer núna að styttast í sumarfríið sem ég get varla beðið eftir. Búin  að panta för í Auschwitz búðirnar og saltnámurnar sem eru þarna líka. Einnig verður litið í bjórverksmiðju og auðvitað verður framleiðslan smökkuð:). Enn hvað um það. Ætli ég skrifi ekki aðeins lengur hér. Þangað til næst.

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 14:15:48 / zepplinn

Mættur aftur


Er kominn í frí, eftir 9 vakta vinnuviku. Lá bara upp í sófa og svaf fram að hádegi. Horfði á American Gangster. Eina líkamlega erfiðið var að steikja 2 hamborgara og opna 1 bjór yfir leiknum í gær. Í dag er ég að vinna í heimasíðu á netinu. Verður það minn vettvangur framvegis. Er orðinn þreyttur á Blogcentral,er það útlitið og umgjörðin sem fer orðið í taugarnar mínar. Hugsanlega verður nýja síðan komin upp um helgina. Ætla mér að verða ferskari og öflugri í skrifum. Lengi var ég að hugsa um nafnið. En í skóla fékk ég viðurnefnið Sepli. Því uppáhalds bandið mitt á þeim tíma var Sepultura en umsjónakennarinn minn(Raggi) sagði alltaf Seplitura. Á síðum fór ég að nota Sepli nafnið og varð að Zepli og núna Zepplinn. Þannig að upplagt var að nota það. Allar myndirnar sem ég var búinn að lofa að setja inn verða þar og fleira til. Endilega kíkið á www.zepplinn.com um helgina. Opnaði fyrir nafnið í dag og tekur 1-2 sólarhringa að opna það.

» 4 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 17:03:26 / zepplinn

Leti og leti.

Sit hér og læt mér leiðast. Konan lasin og ég í fríi. Eftir leiðinlegustu vinnuviku ever er gott að láta sér leiðast aðeins. Er búinn að þrífa íbúðina og henda bjórnum inn í kæli. Þetta fína veður núna og ég nenni ekki að fara neitt núna. Þegar maður keyrir 150-200km á dag í vinnunni þarf maður að hvíla sig á umferðinni. Keypti mér almennilega myndavél um daginn og er að detta inn í að taka myndir. Á eftir að henda nokkrum inn hér. Einnig var ég búinn að lofa að henda inn myndum sem ég á úr partýum hans Gunnza. Er núna að lesa 1000 blaðsíðna bók um ljósmyndun og liti. Maður syfjar bara við að horfa á bókina. Flashback úr framhaldsskóla, þar sem maður var hálfsofandi í tímum. Er að hugsa um skóla aftur en veit ekki hvað skal gera þar. Ætla til Þorlákshafnar um helgina og grilla með fjölskyldunni. Annars ekkert meira að frétta. Ég og frúin erum að skipuleggja sumarfríið og verður það æðislegt. Meira um það síðar.
Sjonni out!!!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 17:00:25 / zepplinn

Hæ!

Verið latur við að blogga núna. Frekar rólegt um að vera. Kaffiboðið síðast klikkaði alveg en það er bara mér að kenna. Steini Flipper hættir núna hjá Securitas. Opnaðist staða útkallsmanns á 1 vaktinni. Axel skaut að mér hvort mér langaði ekki yfir. Eftir að hafa hugsað málið vel ákvað ég að slá til. Að starfa hjá Securitas hefur verið frábær tími og frábært fólk er á 2 vaktinni. Hef frá því að ég byrjaði hjá Securitas langað að enda á útkallinu, enda bý ég við hliðina á línunni. Á þessum 2 árumhef ég orðið að sætta mig við að missa af afmælum hjá fjölskyldunni vegna þess að ég er að vinna. Megnið af fjölskyldunni á afmæli í vinnuviku hjá mér. Þegar frúin byrjaði í Hagkaup er hún að vinna um helgar þegar ég er í fríi. Þetta vegur þungt í ákvörðun minni um að skipta um vakt. Það hefur verið frábært á  2 vaktinni. Þegar maður hefur tækifæri á að hafa það aðeins þægilegra í frívikunni gríp ég það og er sáttur. Það er aðalatriðið. Á eftir að sakna 2 vaktarinnar. Reyndar hittumst við áfram. Þetta verður fínt fyrir mig persónulega. Nú er maður  sáttur við frívikuna. Mín síðasta vika á 2 vaktinni er að renna upp. See ya!

» 6 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 23:49:40 / zepplinn

Aftur?

Ég er kominn aftur. Er búinn að sötra eina rauðvínsflösku með húsrúnni. Vorum að renna yfir ljósmyndasafnið. Reyndist vera 4.3 gíg af myndum. Gróf upp helling af myndum sem ég ætla að vinna í og skella á síðunna. Myndir úr partýum og pókerkvöldi og fleira. Þegar ég var að skoða þetta, voru þetta fínir tímar. Verst að hópurinn leysist upp bara af einhverjum smáatriðum. Þegar ég byrjaði að vinna hjá Securitas hef ég kynnst fullt af frábæru fólki. Verst að megnið af því er hætt eða flutt. Miss you all! Er hérna að sötra wiskýið mitt sem hefur rykfalllið í skápnum. Smelli myndunum efir fótboltaleikina á morgunn. Þangað til skál!!!!;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 23:40:12 / zepplinn

Still here!!!!!

Loksins, loksins er ég farinn að líta eithvað á bloggsíðuna mína. Maður hefur bara verið að taka því rólega,eftir áramót. Enn það er bara sama vinna, borða og sofa. Margt hefur gerst síðan síðast. Ísleifur er tekinn við af honum Jón Birgi og vona að hann standi sig vel enda vanur maður á ferð. Heiðrún fékk bakvaktina og STÆRSTU fréttirnar eru að Gunnzi er að fara austur til Mófa síns, sem vaktstjóri.Síðustu fríhelgi var kveðjuhóf hjá honum þar sem menn drukku stíft ogaðrir stífara en þeir þoldu. Í dag var kaffiboðið hjá mér og var fjölmenni. Stólarnir í íbuðinni rétt dugðu fyrir alla. Sindri mætti eins og skrattinn úr sauðaleggnum og einnig hún Matta. Ekki voru teknar margar myndir enda ekki mikið pláss eftir. Þær eru komnar í albúmið. Einnig á ég eftir að henda inn myndum úr partýinu hjá Gunnza mínum og fleira, fer í það kannski á morgun. Þangað til næst sjáumst. Á eftir að sakna Gunnza mínum:cry: Enn lífið heldur áfram. Kominn ífríviku, ætla að uppfæra dvd listann hjá mér enda hefur safnið dafnað aðeins síðan síðast. Jæja nenni ekki að skrifa meira. Þangað til næst, Sjonni out!!!

» 6 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 22:37:02 / zepplinn

Ennþá á lífi!

Kallinn er ennþá á lífi. Orðinn næstum því mánuður frá síðasta bloggi. Lítið hefur verið að gerast hjá kallinum. Vinna,borða og sofa. Var einn um jólahátíðina, var að vinna og konan í Póllandi að hitta fjölskylduna sína. Mamma og pabbi kíktu á mig á jóladag og stöldruðu við í heilar 15 mínútur. Þegar síðasta vaktin var búin, var kærkomið frí að hefjast. Vakinn með látum á annan í jólum. Dreginn til Þorlákshafnar í hrygg, sem var kærkomið. Í gær notaði ég tækifærið fyrst að maður er einn að sletta úr klaufunum. Sat bara með mitt viskýglas þegar Óli Hákon hringdi og sagði að sé game hjá Fúsalingnum. Það var fámennt en góðmennt. Var spilaður texas hold'em um sopa. Voru menn vel í glasi þegar var drifið sig út. Í myndaalbúminu má sjá vitleysuna. Veit að Fúsi verðiur ekki sáttur en fokkit!.

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 16:39:31 / zepplinn

Sælir allir

Sælir allir, orðið þó nokkuð síðan síðast. Missti af enn einu kaffiboðinu hjá Gunnza. Vonandi heldur fólk að ég sé ekki einhver mannafæla eða hvað.  Hvað um það síðustu 2 vaktirnar voru í skítakulda, sérstaklega síðasta vaktin og ætlaði bévítans kuldinn aldrei að fara. Ég og frúin keyptum okkur nýtt rúm og kom það í gær. "Svaf" alveg rosalega vel, langaði helst ekki að fara fram úr. Einnig keypti ég mér nýjan síma. En verð fjarri góðu gamni í Þorlákshöfn um helgina. Vona að allir skemmti sér vel í jólateitinu. 
 
 

» 6 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 14:41:24 / zepplinn

Rólegheita helgi!

Jæja helgin liðin og sá hjá Gunnza, að partíið hafi slegið í gegn. Veit ekki hvað gerðist inn á salerninu þínu Gunnzi. Stíflaður vaskur og skaufapumpa? Maður leggur saman 2 og 2 og maður fær ástæðu hvers vegna vaskurinn stíflaðist;) Hvar endar þetta:lol:Andzelina náði skriflega bílprófinu og fögnuðum við með hvítvíni og osti, sem fór eitthvað illa ofan í kappann. Þannig að ekkert parístand þessa helgi. Kippa af bjór og wiský bíður þangað til næst. Horfði á United leikinn á laugardeginum, magnaður leikur. Svo magnaður að ég varð að skipta um bol í hálfleik. En verð á næturvakt aftur þessa viku, sem er ágætt svo sem. Annars lítið að frétta af kappanum.
 
Þangað til næst
 
 

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 17:37:45 / zepplinn

Glory,glory man utd!

Mínir menn unnu í dag flottan sigur. Nani pússaði skotskónna og klíndi einu flottasta marki í langann tíma. Viðurkenni að éger gallharður Man utd aðdándi. Rooney og Tevez,þegar þeir byrja að svitna,geri ég það líka. Fagnaði sigrinum með því að vera í fríi í dag. HeHeHe! Brunaði til Þorlákshafnar og horfði á síðari hálfleik. Skolaði niður einum bjór yfir leiknum. Steinsofnaði eftir bjórinn. Annars er ég á leiðinni í útskriftarveislu. Mæti ferskur á kantinum annað kvöld. Ætla að éta á mig gat í kvöld og skemmta mér frábærlega.
 
See you later,fuckers!

» 7 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 19:38:44 / zepplinn

Aumingjaskapur!

Ég hef klárlega misst af partýi aldarinnar. Sorry! Gunnzi minn,  að  hafa ekki komið en er búinn að liggja í aumingjaskap. Segji svona, en er búinn að liggja í bælinu með hausverk dauðans. Gerði ekki neitt alla helgina. Í dag er ég loksins orðinn góður og farinn á ról. Byrjaði að versla jólagjafir. Best er að klára þessa pínu snemma og vera laus við þetta í desember. Maður heyrir eflaust sögurnar af gleðinni á miðvikudagskveldið, þegar maður mætir á vakt.

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 20:57:50 / zepplinn

Loksins

Eftir langan tíma er ég sestur hérna og farinn að dusta rykið af síðunni. Hef verið latur við þetta í og eftir sumarfrí. Alla veganna var farið til Póllands í "sumarfrí" og ætlunin var að sleikja sólina með öl í hendi. Svo var nú aldeilis ekki. Eftir 2 sólardaga voru næstu 12 dagar skýjaðir og næstu 14 með rigningu öðru hvoru. Það er eins og ég hafði pakkað íslenska sumrinu og tekið það með mér. Það voru allir spenntir því Carolina systir Andzelu var komin á steypirinn og átti von á sér meðan við vorum úti. Meðan við biðum eftir því tókst okkur að fara í dýragarð og á sædýrasafn(hendi inn myndum síðar í vikunni). En þá kom 31.ágúst upp og fór Carolina beint upp á spítala og 80 mín síðar var gullfallegur drengur sem verður nefndur Matteus Adam kominn í heiminn. Var því fagnað á viðeigandi pólskan máta. Ég lét þó vodkan eiga sig eftir slæma reynslu. Meðan aðrir sturtuðu í sig vodkanum, sat ég með mitt wiský og vindil. Þessi mánuður var svo fljótur að líða. Nú var erfiðara að kveðja. Kom heim 10 September og 12.september byrjaði ég á útkallinu. Er það frábært þar sem tekur mig 20 sekúndur að labba í vinnunna. Önnur vaktin er söm við sig og var farið í kaffi hjá Gunnza á 3.okt. Frábær mæting og var kæti í liðinu, þar sem var svo góð mæting var ákveðið að hittast á laugardagskveldið hjá Gunnza aftur. Eigum við eitthvað að ræða hvað var mikið stuð, Allir skelltu í sig áfenginu af miklum móð. Ekki veit ég hvurslags áhrif það hefur á vaktina en eftir að áfengisvíman var komin á liðið, var eh.............Við skulum ekkert vera að ræða það neitt. Alla vegana voru Hlynur og Gunnzi með hrein eyru. Á þetta bara eftir að þétt hópnum saman. Er núna kominn í frí og ætla að skella fleiri myndum og gera eitthvað meira. 
 
See'ya fuckers!!!!! 

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagsetning
28. janúar 2012
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 36034
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
RSS tengill